Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 17. desember 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti: Ronaldo er að spara mörkin fyrir úrslitaleikinn
Carlo Ancelotti
Carlo Ancelotti
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, segir að Cristiano Ronaldo hafi sparað mörkin gegn Cruz Azul í gær þar sem hann mun skora í úrslitaleiknum á HM félagsliða.

Real Madrid lagði Cruz Azul að velli með fjórum mörkum gegn engu í undanúrslitu á HM félagsliða en Sergio Ramos, Karim Benzema, Gareth Bale og Isco skoruðu mörkin.

Ronaldo var þó í stuði í gær og reyndi allt til að skora en það tókst þó ekki. Honum tókst að leggja upp en hann virðist ætla að geyma mörkin fyrir úrslitaleikinn sjálfan.

,,Ronaldo spilaði mjög vel, hann var að leggja upp mörk. Hann hefur alltaf áhrif á leiki, þó svo hann komi boltanum ekki í netið. Hann er greinilega að spara mörkin fyrir úrslitaleikinn," sagði Ancelotti.
Athugasemdir
banner
banner