Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mið 17. desember 2014 12:00
Elvar Geir Magnússon
Balotelli ekki til Bournemouth
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli ferðaðist ekki með Liverpool til Bournemouth þar sem rauði herinn etur kappi við heimamenn í enska deildabikarnum í kvöld.

Ítalski landsliðsmaðurinn hefur verið að glíma við meiðsli í nára en kom inn sem varamaður í tapleiknum gegn Manchester United um liðna helgi.

Balotelli var skilinn eftir heima í þeirri von að hann verði klár í slaginn þegar Liverpool heimsækir Arsenal í úrvalsdeildinni næsta sunnudag.

Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína síðan hann var keyptur í sumar.

Leikir kvöldsins í deildabikarnum:
19:45 Bournemouth - Liverpool
19:45 Tottenham - Newcastle
Athugasemdir
banner
banner