Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. desember 2014 09:30
Elvar Geir Magnússon
Celtic gefur atvinnulausum jólagjöf
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Skrifstofufólk hjá skoska félaginu Celtic í Glasgow er í jólaskapi og gefur atvinnulausum stuðningsmönnum frímiða á leik liðsins.

Umræddur leikur er gegn Ross County 27. desember og eru frímiðarnir jólagjöf Celtic til stuðningsmanna sinna í ár.

Þetta er ekkert nýdæmi hjá Celtic en hefð er hjá félaginu að hjálpa þeim stuðningsmönnum sem minna mega sín.

Celtic hefur sex stiga forystu í skosku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner