Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mið 17. desember 2014 15:37
Elvar Geir Magnússon
Falcao vonast til að vera áfram hjá Man Utd
Radamel Falcao.
Radamel Falcao.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Radamel Falcao vonast til að vera áfram hjá Manchester United eftir að lánstíma hans lýkur.

Falcao er á lánssamningi hjá United frá Monaco en meiðsli hafa gert honum erfitt fyrir.

„Ég er afar ánægður í þessari borg og hjá þessu félagi. Ég nýt þess að vera hérna og vonast svo sannarlega til að verða alfarið leikmaður Manchester United," segir Falcao.

„Augljóslega veltur þetta á því að ég spili meira og eftir það kemur þetta í ljós."
Athugasemdir
banner
banner