San Lorenzo 2 - 1 Auckland City
1-0 Pablo Barrientos ('45)
1-1 Angel Berlanga ('67)
2-1 Mauro Matos ('93)
1-0 Pablo Barrientos ('45)
1-1 Angel Berlanga ('67)
2-1 Mauro Matos ('93)
Besta lið Suður-Ameríku mætti besta liði Eyjaálfu í undanúrslitum HM félagsliða sem haldið er í Marokkó í ár.
Pablo Barrientos kom San Lorenzo, frá Argentínu, yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Angel Berlanga jafnaði fyrir Nýsjálendingana í Auckland City og tókst þannig að knýja leikinn í framlengingu.
Mauro Matos skoraði í upphafi framlengingar og héldu Argentínumenn út og eru búnir að tryggja sér úrslitaleik við Real Madrid.
Athugasemdir