Jose Mourinho segist vera með nægilega góðan hóp til að vinna enska meistaratitilinn. Ekki sé þörf á því að taka upp veskið í janúarglugganum.
„Hópurinn er afskaplega góður, þetta er góð blanda af yngri og eldri leikmönnum," segir Mourinho en Chelsea trónir á toppi deildarinnar.
„Í okkar markmiði er að byrja tímabilið og ljúka því með sama hópinn. Það er því enginn á útleið og enginn að koma inn heldur."
Chelsea komst áfram í enska deildabikarnum í gær með 3-1 sigri gegn Derby en hér að neðan má sjá stöðuna í úrvalsdeildinni.
Athugasemdir