Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. desember 2014 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Flott ljósasýning á Allianz
Mynd: Getty Images
FC Bayern München er á toppi þýsku deildarinnar og gengur vel í öllum keppnum enda gæðaflokki ofar en langflest lið heimsins.

Oft er talað um hversu skemmtileg menning er í kringum knattspyrnuna í Þýskalandi þar sem knattspyrnufélög eiga í mjög nánum samskiptum við stuðningsmenn sína.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af því þegar FC Bayern þakkaði stuðninginn með svakalegri ljósasýningu fyrir framan stuðningsmenn sína.

Svipuð ljósasýning átti sér stað í fyrra en hún er alltaf haldin eftir síðasta heimaleik ársins, sem var 2-0 sigur gegn Freiburg í ár.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner