Bournemouth 0 - 4 Liverpool
0-1 Philippe Coutinho ('20)
0-2 Dejan Lovren ('26)
0-3 Mohamed Salah ('44)
0-4 Roberto Firmino ('66)
0-1 Philippe Coutinho ('20)
0-2 Dejan Lovren ('26)
0-3 Mohamed Salah ('44)
0-4 Roberto Firmino ('66)
Vörn Bournemouth átti engin svör við gríðarlega öflugum sóknarleik Liverpool er liðin mættust í seinni leik dagsins í enska boltanum.
Philippe Coutinho kom gestunum yfir snemma leiks eftir frábært einstaklingsframtak og tvöfaldaði Dejan Lovren forystuna með skutluskalla eftir atgang í teig heimamanna í kjölfar hornspyrnu.
Mohamed Salah lék á nokkra varnarmenn þegar hann kom gestunum í 3-0 rétt fyrir leikhlé.
Roberto Firmino gerði fjórða markið í síðari hálfleik og var sigur þeirra rauðklæddu aldrei í hættu.
Liverpool er í fjórða sæti eftir sigurinn á meðan Bournemouth er aðeins einu stigi frá fallsæti.
Athugasemdir