Heimild: Daily Mail
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að njósnateymi félagsins hafi sett pressu á sig að kaupa Egyptann Mohamed Salah í sumar. Klopp taldi í fyrstu að Salah væri of grannur.
Klopp er væntanlega sáttur í dag eftir að hafa hlustað á ráðin sem hann fékk frá njósnateyminum.
Salah var keyptur fyrir 34 milljónir punda frá Roma og það eru kaup tímabilsins hingað til. Hann hefur farið á kostum á tímabilinu og er sem stendur markahæstur í úrvalsdeildinni.
„Njósnateymi okkar stóð sig frábærlega í kringum Mo. Þeir hættu ekki að tala um hann," sagði Klopp.

Salah verður í eldlínunni í dag þegar Liverpool heimsækir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir