Það líður varla sá leikur eða fréttamannafundur sem Philippe Coutinho er ekki spurður út í framtíð sína hjá Liverpool og möguleg félagsskipti til Barcelona.
Coutinho skoraði og lagði upp í 4-0 sigri á Bournemouth í dag og var hann með Alex Oxlade-Chamberlain í viðtali að leikslokum.
Coutinho skoraði og lagði upp í 4-0 sigri á Bournemouth í dag og var hann með Alex Oxlade-Chamberlain í viðtali að leikslokum.
Coutinho virtist ekkert sérlega sáttur þegar hann var spurður í enn eitt skiptið út í framtíð sína og ákvað Chamberlain að taka yfir viðtalið og láta spyrilinn heyra það.
Sick of these questions to Phil. Well done Ox stepping in. Great team spirit. #ynwa pic.twitter.com/yiVWsLdBoK
— Mark Hamilton (@Redhammy71) December 17, 2017
Athugasemdir