Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. desember 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pique: Væri gaman að mæta Man City í úrslitum
Mynd: Getty Images
Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, dreymir um úrslitaleik gegn Manchester City í Meistaradeildinni.

Manchester City hefur verið að spila frábærlega í ensku úrvalsdeildinni og er á toppi deildarinnar með gott forskot. Liðið er að spila undir stjórn Pep Guardiola sem fékk Pique aftur til Katalóníu, til Barcelona á sínum tíma.

„Núna geturðu séð að leikmennirnir vita hvað Pep vill og hvenig hann vill að þeir spili," sagði Pique við Telegraph.

„Þeir eru að spila frábæran fótbolta, þeir eru langlíklegastir til að vinna ensku úrvalsdeildina. Ég vona að þeir vinni bikarinn líka og það væri gott að mæta þeim í úrslitum Meistaradeildarinnar."

Manchester City mætir Basel í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á meðan Barcelona leikur gegn Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner