Þremur leikjum er lokið í spænska boltanum í dag en viðureign Leganes og Real Madrid var frestað vegna HM félagsliða, sem Real vann nokkuð auðveldlega.
Cristhian Stuani gerði eina mark Girona gegn Getafe í fyrsta leik dagsins og þá gerðu Pablo Fornais sigurmark Villarreal gegn Celta Vigo.
Cristhian Stuani gerði eina mark Girona gegn Getafe í fyrsta leik dagsins og þá gerðu Pablo Fornais sigurmark Villarreal gegn Celta Vigo.
Girona og Villarreal eru í evrópubaráttu með 23 og 24 stig eftir 16 umferðir.
Gerard Moreno hefur verið funheitur undanfarið og gerði tvennu fyrir Espanyol á útivelli gegn botnliði Las Palmas.
Heimamenn mættu öflugir til leiks í síðari hálfleik og minnkaði Loic Remy muninn á 80. mínútu áður en Jonathan Calleri jafnaði. Jonathan Viera fékk tækifæri til að fullkomna ótrúlega endurkomu þegar hann steig á vítapunktinn á 95. mínútu, en brenndi af.
Girona 1 - 0 Getafe
1-0 Cristhian Stuani ('5)
Celta Vigo 0 - 1 Villarreal
0-1 Pablo Fornais ('34)
Las Palmas 2 - 2 Espanyol
0-1 Gerard Moreno ('19)
0-2 Gerard Moreno ('41)
1-2 Loic Remy ('80)
2-2 Jonathan Calleri ('89)
Athugasemdir