Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 17. desember 2017 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Stórliðin fylgjast með Savic: Gæti ekki verið meira sama
Mynd: Getty Images
Sergej Milinkovic-Savic átti frábæran leik er Lazio gerði 3-3 jafntefli við Atalanta fyrr í kvöld.

Njósnarar frá Manchester United, Chelsea, Barcelona og Mónakó voru á leiknum og sáu hann skora tvennu í fyrri hálfleik.

Fabio Paratici, yfirmaður íþróttamála hjá Juventus, mætti einnig á leikinn til að fylgjast með Savic.

„Ég skoraði tvö mikilvæg mörk en það breytir engu. Ég er leikmaður Lazio og mér gæti ekki verið meira sama um hver er að fylgjast með mér," sagði Savic að leikslokum.

„Ég spila fyrir Lazio og er hamingjusamur hér."

Claudio Lotito, forseti Lazio, segist hafa hafnað 70 milljón evra tilboði í Savic í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner