Sean Dyche, stjóri Burnley, segir það ekki vera rétt að hann hafi borðað orma á ferli sínum sem fótboltamaður.
Soren Andersen, fyrrum liðsfélagi Dyche hjá Bristol City, heldur því fram að Dyche hafi orðið djúpraddaður eftir að hafa borðað orma!
Soren Andersen, fyrrum liðsfélagi Dyche hjá Bristol City, heldur því fram að Dyche hafi orðið djúpraddaður eftir að hafa borðað orma!
„Ég reyki líka úr púströri á bílum og borða möl í morgunmat. Þess vegna er röddin mín svona," sagði Dyche léttur í bragði.
„Ég get sagt frá því að ég borðaði ekki ormana í alvöru. Þetta var grín þar sem þú náðir í stóran orma af jörðinni og varst með hann lafandi út úr munninum eins og þú værir að tyggja hann."
„Auðvitað kom ormurinn út á endanum og ég þreif munninn með vatni eftir á!"
Hér að neðan má heyra röddina öflugu hjá Dyche.
Athugasemdir