Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. janúar 2018 23:55
Ívan Guðjón Baldursson
Mexíkó staðfestir leikinn gegn Íslandi í mars
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Mexíkó er búið að staðfesta að fyrsti leikur liðsins í undirbúningi fyrir HM í Rússlandi verður gegn Íslandi.

Liðin mætast á Levi's stadium, heimavelli San Francisco 49ers í NFL, 23. mars. Fjórum dögum síðar mæta Strákarnir okkar svo Perú í New York.

„Það er mikilvægt að sjá hvernig við spilum gegn liði eins og Íslandi. Þeir eru með einn af bestu varnartengiliðunum, öfluga liðsheild og flækja hlutina ekki um of," segir Juan Carlos Osorio, þjálfari Mexíkó.

„Ísland er dæmi um frábæra knattspyrnuþjóð. Það er magnað að svona fámenn þjóð sé að ná svona langt. Þeir eru með aragrúa af menntuðum þjálfurum og geta æft allt árið þrátt fyrir veðrið.

Eftir leikina í Bandaríkjunum verða tveir leikir á Íslandi áður en flogið verður loks til Rússlands í júní.


Athugasemdir
banner
banner
banner