Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 18. janúar 2018 21:10
Ívan Guðjón Baldursson
Mirror og Telegraph: Chelsea vill Crouch
Mynd: Getty Images
Mirror og Telegraph greina frá því að Chelsea sé að spyrjast fyrir um að fá Peter Crouch til sín.

Antonio Conte er ósáttur með framlag Michy Batshuayi og vill finna verðuga varaskeifu fyrir Alvaro Morata í hans stað.

Það er augljóst að Chelsea er á höttunum á eftir hávöxnum sóknarmanni. Félagið hefur verið að reyna að fá Andy Carroll til sín frá West Ham en þau félagsskipti fjöruðu út vegna meiðsla.

Crouch hefur komið óvenju mikið við sögu hjá Stoke City á tímabilinu og er búinn að gera þrjú mikilvæg mörk í deildinni komandi af bekknum.

Crouch tryggði sínum mönnum stig gegn West Brom og Leicester og sigur gegn Southampton. Hann verður 37 ára eftir tæpar tvær vikur.
Athugasemdir
banner