Miðvörðurinn öflugi Gerard Pique hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning hjá Barcelona.
Pique verður 31 árs í næsta mánuði en Barcelona ætlar að halda honum áfram næstu árin.
Til að tryggja að ekkert félag kaupi Pique þá setti Barcelona klásúlu um riftunarverð í samningnum sem hljóðar upp á 500 milljónir evra eða 441 milljón punda.
Afar ólíklegt verður að teljast að eitthvað félag borgi riftunarverðið á samningstíma Pique!
Pique lék í yngri liðum Barcelona en hann sneri aftur til Börsunga árið 2008 eftir fjögurra ára dvöl hjá Manchester United.
Athugasemdir