Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. febrúar 2018 17:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búlgaría: Góð byrjun hjá Hólmari eftir vetrarfrí
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Levski Sofia 1 - 0 Botev Plodiv
1-0 Sjálfsmark ('90)

Hólmar Örn Eyjólfsson fer vel af stað í búlgörsku úrvalsdeildinni eftir vetrarfrí. Hólmar er á mála hjá Levski Sofia en liðið lék í dag sinn fyrsta deildarleik frá 9. desember.

Levski mætti Botev Plodiv og var Hólmar á meðal byrjunarliðsmanna hjá heimamönnum í Levski.

Fyrir leikinn munaði sjö stigum á liðunum en leikurinn var frekar jafn og að lokum var það sjálfsmark á lokamínútunum sem skildi liðin að. Það voru Hólmar og félagar sem stóðu uppi sem sigurvegarar, 1-0.

Levski Sofia er í þriðja sæti búlgörsku úrvalsdeildarinnar, níu stigum á eftir toppliðinu sem er Ludogorets.
Athugasemdir
banner