sun 18. febrúar 2018 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
Fowler: Salah getur gert 40 mörk
Mynd: Getty Images
Robbie Fowler hefur miklar mætur á Mohamed Salah sem er búinn að gera 30 mörk fyrir Liverpool á tímabilinu.

Fowler segir Egyptann hæglega geta bætt tíu mörkum við fyrir lok tímabilsins.

„Hann hefur verið ótrúlegur hingað til, hann getur hæglega skorað 40 mörk á tímabilinu," sagði Fowler.

„Það vissu allir að Salah væri mjög góður leikmaður en það bjóst enginn við þessari byrjun hjá honum. Það er ógnvekjandi að fylgjast með honum.

„Ég er stuðningsmaður Liverpool og mér finnst gaman að sjá liðið skora mörk. Ég vona að Salah haldi áfram að raða inn mörkunum og bæti öll met sem hægt er að bæta."


Salah er í keppni við Harry Kane og Sergio Aguero um að vera markakongur úrvalsdeildarinnar. Aguero og Kane eru báðir fremstu menn sinna liða á meðan Salah er úti á vængnum hjá Liverpool.

„Salah er leikmaður sem virðist geta skorað hvenær sem er. Hann var ógnvænlega fljótur að laga sig að ensku úrvalsdeildinni og gæti orðið markakongur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner