Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 18. febrúar 2018 21:47
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Milan jafnaði Sampdoria á stigum
Mynd: Getty Images
AC Milan var rétt í þessu að leggja Sampdoria að velli í evrópudeildarbaráttu ítölsku deildarinnar.

Milan jafnaði Sampdoria þannig á stigum í 6. sæti og eru liðin sjö stigum frá meistaradeildarsæti.

Milan verðskuldaði sigurinn og hefði getað unnið talsvert stærra en Emiliano Viviano var frábær í markinu hjá Sampdoria.

Viviano varði vítaspyrnu frá Ricardo Rodriguez snemma leiks en Giacomo Bonaventura skoraði skömmu síðar.

Gestirnir hefðu getað stolið stigi undir lokin þegar Gianluca Caprari var í dauðafæri en hitti boltann illa og skaut rétt framhjá.

Atalanta gerði þá jafntefli við Fiorentina. Gestirnir frá Flórens komust yfir og voru betri í leiknum en Andrea Petagna bjargaði stigi fyrir heimamenn. Sex stig skilja liðin að um miðja deild.

Milan 1 - 0 Sampdoria
1-0 Giacomo Bonaventura ('13)

Atalanta 1 - 1 Fiorentina
0-1 Milan Badelj ('16)
1-1 Andrea Petagna ('45)
Athugasemdir
banner