sun 18. mars 2018 13:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Icardi með fernu í stórsigri Inter
Icardi skoraði fernu.
Icardi skoraði fernu.
Mynd: Getty Images
Sampdoria 0 - 5 Inter
0-1 Ivan Perisic ('26 )
0-2 Mauro Icardi ('30 , víti)
0-3 Mauro Icardi ('31 )
0-4 Mauro Icardi ('44 )
0-5 Mauro Icardi ('51 )

Inter gekk frá Sampdoria í fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Ivan Perisic, sem var sterklega orðaður við Manchester United síðasta sumar, kom Inter yfir á 26. mínútu. Það var bara byrjunin þar sem Mauro Icardi, fyrirliði Inter, skellti í þrennu áður en fyrri hálfleikurinn kláraðist og staðan 4-0 í hálfleik.

Þvílíkt og annað eins hjá Icardi sem er næst markahæsti leikmaður ítölsku úrvalsdeildarinnar á eftir Ciro Immobile.

Icardi bætti við fjórða marki sínu í upphafi seinni hálfleiksins áður en hann fékk síðan heiðursskiptingu.

Lokatölur urðu 5-0 og magnaður sigur Inter staðreynd. Inter er í fjórða sæti deildarinnar á meðan Sampdoria er í sjöunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner