Adrian Mariappa lék í vörn Watford í gær sem tapaði stórt fyrir Liverpool, 5-0. Mariappa sagði loka niðurstöðu leiksins vera vandræðalega.
„Þetta var mjög erfiður dagur fyrir okkur, 5-0, það er ekki annað hægt að segja en að niðurstaðan sé vandræðaleg."
„Mjög lélegur varnarleikur hjá okkur, við vorum að tapa boltanum á mjög slæmum stöðum og þeir nýttu sér þessi mistök okkar."
„Þeir eru með mikið gæða lið og fóru illa með okkur, Salah reyndist okkur mjög erfiður og átti mikinn þátt í því hversu slæm úrslitin voru," sagði Mariappa en Salah skoraði fjögur mörk í leiknum í gær.
Athugasemdir