Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fös 18. apríl 2014 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Blanc: Fjarvera Zlatan breytir öllu
Zlatan getur lítið skorað þegar hann er fjarverandi vegna meiðsla
Zlatan getur lítið skorað þegar hann er fjarverandi vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Laurent Blanc viðurkennir að fjarvera Zlatan Ibrahimovic hefur mikil áhrif á leikstíl og úrslit PSG sem er ekki búið að skora mark í síðustu tveimur leikjum sínum.

Zlatan er búinn að skora meira en þriðjung af mörkum PSG í deildinni og er með 10 mörk í Meistaradeildinni, næstmarkahæstur þar eftir Cristiano Ronaldo sem er með 14.

,,Það breytir öllu að missa Ibra úr liðinu. Hann er gríðarlega mikilvægur partur af spilamennsku liðsins," sagði Blanc.

,,Þó það séu menn sem geta komið í manns stað þá breytist leikstíllinn. Edinson Cavani er öðruvísi leikmaður heldur en Ibra.

,,Nú höfum við ekki skorað í tveimur leikjum í röð og þurfum að bæta markaskorunina. "

Athugasemdir
banner
banner