Emil Stefánsson er farinn á lán til Fjarðarbyggðar frá FH.
Emil mun leika sinn fyrsta leik með Fjarðarbyggð í kvöld þegar liðið mætir Einherja í Lengjubikarnum.
Hjá Fjarðarbyggð hittir Emil fyrir þrjá aðra fyrrverandi FH-inga, Tommy Nielsen sem er spilandi aðstoðarþjálfari og bræðurna Andra og Brynjar Jónassyni sem nýlega gengu til liðs við Fjarðarbyggð frá FH.
Ljóst er að þessi sending leikmanna frá FH mun verulega styrkja lið Fjarðarbyggðar sem í fyrra vann sér sæti í 2. deild að nýju.
Athugasemdir