Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 18. apríl 2014 14:35
Brynjar Ingi Erluson
Hazard tæpur fyrir leikinn gegn Atletico Madrid
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, leikmaður Chelsea á Englandi, gæti misst af fyrri leik liðsins gegn Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Hazard, sem var í dag tilnefndur til verðlauna sem bæði besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu sem og besti ungi leikmaður tímabilsins, meiddist á kálfa gegn Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Hann gæti því misst af fyrri leik liðsins gegn Atletico Madrid í undanúrslitum en Steve Holland, aðstoðarþjálfari Chelsea, sagði að ekki er öruggt að hann verði klár.

,,Við erum ekki búnir að loka á þann möguleika að hann verði með en hann hefur ekkert æft með hópnum sem segir okkur það að það þykir ólíklegt að hann spili," sagði Holland.
Athugasemdir
banner
banner