Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 18. apríl 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Klose vill klára ferilinn hjá Lazio
Miroslav Klose í leik með Lazio
Miroslav Klose í leik með Lazio
Mynd: Getty Images
Miroslav Klose, framherji Lazio á Ítalíu, gæti yfirgefið félagið í sumar en fjölmörg lið hafa áhuga á að fann er samningur hans rennur út.

Klose, sem er 35 ára gamall, rennur út á samning hjá Lazio í sumar en enn á eftir að skrifa undir framlengingu á samning sínum og óvíst er hvort hann geri það.

Framherjinn er nú opinn fyrir tilboð frá öðrum félögum en hann segist þó afar ánægður í Róm.

,,Ég hef rætt við Lazio nokkrum sinnum, bæði áður og undanfarið. Það hefur ekki verið skrifað undir neitt og ég vil ekki neita því að ég sé að ræða einnig við önnur félög en Lazio er þó í forgang," sagði Klose.

,,Fjölskyldan er ánægð í Róm og það er ekki satt að ég sé að bíða eftir tilboðum frá Brasilíu, hvað þá að ég vilji fara í annað ítalskt lið. Ég yrði hæstánægður með að vera áfram hjá Lazio og klára ferilinn hjá félaginu," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner