Junior Fernandes, leikmaður Dinamo Zagreb í Króatíu, mun missa af HM með Síle í sumar en hann fótbrotnaði í 3-0 sigri á RNK Split.
Fernandes, sem hefur verið lykilmaður í Zagreb en hann fóbrotnaði í leik liðsins á dögunum en hann hafði verið partur af landsliðshóp Síle. Framherjinn knái er á láni frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi en tímabilið er augljóslega búið hjá honum.
Ljóst er að hann kemur til með að missa af HM í Brasilíu í kjölfarið en hægt er að sjá myndbanda af þessu skelfilega fótbroti hér fyrir neðan.
Athugasemdir