Fylgst með leiknum í úrslitaþjónustu á forsíðu
Reading og Arsenal mætast í undanúrslitum enska FA bikarsins eftir um klukkustund en byrjunarliðin eru klár.
Flautað verður til leiks á Wembley klukkan 16:20 en sigurvegarinn úr viðureigninni í dag mætir sigurvegaranum úr viðureign Aston Villa og Liverpool á morgun í úrslitaleik á Wembley í lok maí.
Jack Wilshere er kominn aftur í leikmannahóp Arsenal og er á bekknum en hann hefur ekki spilað síðan 22. nóvember. Wojciech Szczesny fær áfram að verja markið í bikarleikjunum.

Byrjunarlið Arsenal: Szczesny, Debuchy, Mertesacker, Koscielny, Gibbs, Coquelin, Ramsey, Cazorla, Ozil, Alexis, Welbeck
Varamenn: Ospina, Gabriel, Monreal, Flamini, Wilshere, Walcott, Giroud
Byrjunarlið Reading: Federici, Gunter, Pearce, Pogrebnyak, Robson-Kanu, Obita, Chalobah, McCleary, Mackie, Williams, Hector.
Athugasemdir