Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. apríl 2015 18:51
Elvar Geir Magnússon
Enski bikarinn: Missti boltann gegnum klofið og Arsenal vann
Adam Federici gerði hörmuleg mistök.
Adam Federici gerði hörmuleg mistök.
Mynd: Getty Images
Reading 1 - 2 Arsenal
0-1 Alexis Sanchez ('39 )
1-1 Garath McCleary ('54 )
1-2 Alexis Sanchez ('105 )

Alexis Sanchez skoraði bæði mörk Arsenal sem vann 2-1 sigur gegn B-deildarliði Reading í undanúrslitum enska bikarsins í dag. Sigurmarkið kom í framlengingu.

Adam Federici, markvörður Reading, hafði átt frábæran leik en breyttist á augabragði úr hetju í skúrk þegar hann gerði hræðileg mistök í sigurmarki Arsenal en hann missti boltann á afar klaufalegan hátt í gegnum klofið á sér og inn.

Arsenal er ríkjandi bikarmeistari og mun leika gegn Aston Villa eða Liverpool í úrslitum. Hinn undanúrslitaleikurinn fer fram á morgun klukkan 14.
Athugasemdir
banner
banner
banner