Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 18. apríl 2015 18:11
Elvar Geir Magnússon
Framlengt á Wembley - Arsenal í basli
Kampakátir leikmenn Reading fagna.
Kampakátir leikmenn Reading fagna.
Mynd: Getty Images
Venjulegum leiktíma er lokið á þjóðarleikvangi Englendinga, Wembley, þar sem Reading og Arsenal eigast við í undanúrslitum enska bikarsins.

Leikið er til þrautar og er framlenging að hefjast. Ef staðan verður enn jöfn að henni lokinni ráðast úrslitin í vítaspyrnukeppni.

Arsenal leiddi í hálfleik eftir mark Alexis Sanches eftir frábæra sendingu Mesut Özil.

B-deildarliðið Reading náði að jafna á 54. mínútu þegar Garath McCleary skoraði.

Fylgst er með gangi mála í úrslitaþjónustu á forsíðu.

Reading 1 - 1 Arsenal
0-1 Alexis Sanchez ('39 )
1-1 Garath McCleary ('54 )
Athugasemdir
banner
banner