Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. apríl 2015 17:52
Elvar Geir Magnússon
Spánn: Frönsk hetja á Riazor
Mynd: Getty Images
Deportivo 1 - 2 Atletico Madrid
0-1 Antoine Griezmann ('5 )
0-2 Antoine Griezmann ('22 )
1-2 Oriol Riera ('78 )

Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann var hetja Atletico Madrid sem heimsótti Deportivo La Coruna og vann 2-1 útisigur.

Hann skoraði tvívegis og kom Atletico tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik á Riazor leikvanginum.

Heimamenn náðu að minnka muninn í seinni hálfleik en komust ekki lengra.

Atletico Madrid er í þriðja sæti, níu stigum á eftir Barcelona sem trónir á toppnum. Deportivo er í fallsæti með 28 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner