Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. apríl 2015 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Porto: Ég hef ekki áhuga á því að taka við Real
Mynd: Getty Images
Julen Lopetegui, þjálfari Porto í Portúgal, segist ekki hafa áhuga á því að taka við Real Madrid.

Óvíst er hvort Carlo Ancelotti verði áfram hjá Madrídingum eftir sumarið en liðið er sem stendur tveimur stigum á eftir Barcelona í spænsku deildinni og þá gerði liðið markalaust jafntefli við Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Lopetegui hefur aftur á móti gert magnaða hluti með lið Porto á þessari leiktíð en liðið vann Bayern München með þremur mörkum gegn einu í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og þá er liðið í öðru sæti portúgölsku deildarinnar.

Hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid að undanförnu en hann segist ekki vera á leið þangað.

,,Ég hef ekki áhuga á því. Ég er mjög ánægður hjá Porto og mér líður mjög vel í þessu verkefni mínu hjá félaginu," sagði Lopetegui.
Athugasemdir
banner
banner
banner