Fyrsta umferð norsku bikarkeppninnar var spiluð í dag. Aron Sigurðarson átti stórleik í öruggum sigri Start á Vigor.
Aron skoraði þrjú mörk í 8-1 sigri Start. Guðmundur Andri Tryggvason var einnig í liði Start en Kristján Flóki Finnbogason kom ekkert við sögu.
Orri Sigurður Ómarsson var í byrjunarliði Hamkam í 3-1 sigri gegn Tynset en fór útaf eftir rúman klukkutíma leik.
Ingvar Jónsson stóð í marki Sandefjord í stórsigri á Eik-Tonsberg en Emil Pálsson var frá vegna meiðsla.
Hólmbert Aron Friðjónsson og Aron Elís Þrándarsson voru á varamannabekknum hjá Alesund sem tapaði 2-1 gegn D-deildarliði Bergsoy. Þá var Samúel Friðjónsson á varamannabekk Valeranga sem sigraði Arvoll örugglega 8-0.

Athugasemdir