KA 1 - 1 Fjölnir
1-0 Mads Rosenberg ('60)
1-1 Atli Már Þorbergsson ('89)
1-0 Mads Rosenberg ('60)
1-1 Atli Már Þorbergsson ('89)
KA gerði jafntefli við Fjölni í Boganum í fyrsta leik dagsins í 1. deild karla þar sem Atli Már Þorbergsson jafnaði leikinn fyrir gestina undir lokin.
Staðan var markalaus í hálfleik en Mads Rosenberg kom heimamönnum yfir eftir korter af síðari hálfleik.
Atli Már jafnaði leikinn á 89. mínútu og eru bæði lið því með fjögur stig eftir tvo leiki, en KA lagði Selfoss í fyrstu umferð og Fjölnir lagði KF.




