David Beckham gæti snúið aftur í bandarísku MLS-deildina sem eigandi á nýju félagi en ráðgjafar hans hafa þegar átt fundi með forráðamönnum deildarinnar.
Á fimmtudag tilkynnti Beckham það að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna en hann hefur ekkert sagt um framtóð sína.
19 lið eru í MLS-deildinni en vonast er til að bæta því 20. við í New York. Það kemur þó ekki til greina að Beckham eignist félag þar en líklegt er að Sheikh Mansour, eigandi Manchester City, verði kaupandi félagsins þar.
Beckham hefur á síðustu árum oftar en einu sinni lýst því yfir að hann sé spenntur fyrir því að eignast fótboltafélag í framtíðinni.

