Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 18. maí 2013 14:40
Ívan Guðjón Baldursson
CSKA rússneskur meistari
CSKA frá Moskvu vann rússnesku efstu deildina í fjórða sinn þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Kuban Krasnodar á laugardaginn.

CSKA er í efsta sæti deildarinnar með 64 stig á meðan ríkjandi meistarar Zenit frá Sankti Pétursborg eru í öðru sæti með 58 stig.

CSKA á einn leik eftir en Zenit á tvo, og þó Zenit nái CSKA á stigum þá getur liðið ekki unnið deildina vegna þess að ef tvö lið enda jöfn þá er liðið með fleiri sigra í hærra sæti. CSKA er með 20 sigra og Zenit 17.

CSKA varð rússneskur meistari 2003, 2005 og 2006 og hefur unnið rússneska bikarinn sex sinnum. Félagið vann einnig sóvésku deildina sjö sinnum og sóvéska bikarinn fimm sinnum.

Nú er gríðarlega mikil evrópubarátta í rússnesku deildinni þar sem Anzhi Makhchkala, Kuban Krasnodar, Dynamo Moskva, Rubin Kazan og Spartak Moskva eru öll í gríðarlegri baráttu um 3-5. sæti.
Slapp
banner