Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 07:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Dante hlakkar til að spila á gamla heimavellinum
Brasilíski varnarmaðurinn Dante hjá Bayern München hlakkar til að mæta sínum gömlu félögum í Mönchengladbach í dag en ætlar þó ekki að færa þeim neinar gjafir.

Þessi öflugi leikmaður gekk í raðir Bayern München síðasta sumar frá Mönchengladbach og nú mun hann mæta á sinn gamla heimavöll þegar liðin eigast við í lokaumferðinni í þýsku úrvalsdeildinni í dag klukkan 13:30.

,,Þetta er vissulega mjög sérstakt. Ég hlakka virkilega til að sjá vini mína og stuðningsmennina aftur," sagði Dante.

,,En við förum klárlega þangað til að vinna, við verðum klárir í slaginn."

Dante hefur átt stóran þátt í velgengni Bayern á tímabilinu en eftir komu hans hefur vörn liðsins verið mjög stöðug og hefur liðið aðeins fengið 15 mörk á sig í deildinni.

Hann vann þýsku úrvalsdeildina með Bayern á tímabilinu og á möguleika á að vinna tvo titla í viðbót áður en tímabilinu lýkur, Meistaradeildina og þýska bikarinn. Þá hefur hann verið valinn í brasilíska landsliðið fyrir Álfukeppnina í næsta mánuði.

Jupp Heynckes, þjálfari Bayern, getur ekkert annað en lofsamað frammistöðu hans í ár.

,,Frammistaða hans er ein af megin ástæðum þess að við höfum fengið svo fá mörk á okkur," sagði Heynckes.

Dante hefur spilað 43 leiki á tímabilinu og skorað eitt mark.
Slapp
banner
banner