Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 18. maí 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Diljá og Erla Steina í HK/Víking (Staðfest)
Kvenaboltinn
Diljá Ólafsdóttir er farin í HK/Víking.
Diljá Ólafsdóttir er farin í HK/Víking.
Mynd: Fótbolti.net - Gunnar Már Hauksson
Kvennalið HK/Víkings náði á endanum í fjóra leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokaði í vikunni en liðið leikur í Pepsi-deild kvenna í sumar. Diljá Ólafsdóttir og Erla Steina Sverrisdóttir komu til félagsins á lokasprettinum í glugganum.

Diljá Ólafsdóttir kemur frá Aftureldingu en hún er 23 ára gömul og hefur spilað 22 leiki í efstu deild með Aftureldingu, Þrótti og KR, og spilaði með U17 ára landsliðinu.

Erla Steina Sverrisdóttir kemur frá Val en hún er 19 ára gömul og hefur spilað tvo leiki í efstu deild með Hlíðarendafélaginu. Erla var áður í yngri flokkum Víkings en fór til Vals fyrir fimm árum.

Þar með hafa fjórir nýir leikmenn komið til HK/Víkings í vikunni en jamaíski markvörðurinn Nicole McClure og bandaríski varnarmaðurinn Rachel Wood hafa einnig samið um að spila með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Slapp
banner
banner