Edin Dzeko mun ekki yfirgefa Manchester City í sumar og stefnir á að leika með liðinu á næsta tímabili samkvæmt umboðsmanni hans.
Bosníski framherjinn hefur átt erfitt með að festa sig í sessi í byrjunarliðinu og er áfram orðaður við brottför.
Bosníski framherjinn hefur átt erfitt með að festa sig í sessi í byrjunarliðinu og er áfram orðaður við brottför.
Það kemur sterklega greina að Dzeko snúi aftur til Þýskalands þar sem hann spilaði áður fyrir Wolfsburg. Þó er talið að ítalska félagið Napoli sé í bílstjórasætinu um leikmanninn.
Umboðsmaður Dzeko segir þó að skjólstæðingur sinn sé ánægður á Englandi og stefnir á að vera áfram í herbúðum Manchester City.
,,Í augnablikinu hef ég ekki fengið nein símtöl frá Ítalíu varðandi Edin," sagði Irfan Redzepagic, umboðsmaður.
,,Þetta eru bara orðrómar. Dzeko mun spila aftur á næsta tímabili fyrir Manchester City."



