Sassuolo, Livorno og Verona voru í gífurlega harðri baráttu um tvö efstu sæti ítölsku B deildarinnar í dag.
Fyrstu tvö sæti deildarinnar komast beint upp í A deildina á meðan þriðja til sjötta sæti þurfa að mætast í umspili um hvaða lið kemst upp.
Fyrstu tvö sæti deildarinnar komast beint upp í A deildina á meðan þriðja til sjötta sæti þurfa að mætast í umspili um hvaða lið kemst upp.
Sassuolo lagði Livorno með níu leikmenn inná og endar á toppi deildarinnar með 85 stig, Emil Hallfreðsson og félagar í Verona enda í öðru sæti með 82 stig og Livorno endar í þriðja sæti með 80 stig.
Emil lék allan leikinn með Verona í markalausu jafntefli gegn Empoli í dag og hefur miðjumaðurinn verið einn helsti leikmaður félagsins undanfarin tímabil.
Sassuolo 1 - 0 Livorno
1-0 S. Missiroli ('96)
Rauð spjöld: L. Antei ('57), D. Berardi ('77), Sassuolo - V. Fiorillo ('76), Livorno
Verona 0 - 0 Empoli




