Sampdoria 3 - 2 Juventus
0-1 Fabio Quagliarella ('25 )
1-1 Eder ('31 , víti)
2-1 Lorenzo De Silvestri ('57 )
3-1 Mauro Icardi ('75 )
3-2 Emanuele Giaccherini ('90 )
0-1 Fabio Quagliarella ('25 )
1-1 Eder ('31 , víti)
2-1 Lorenzo De Silvestri ('57 )
3-1 Mauro Icardi ('75 )
3-2 Emanuele Giaccherini ('90 )
Sampdoria vann 3-2 sigur á Juventus í ítölsku A-deildinni í kvöld en þetta var leikur í lokaumferð deildarinnar. Juventus er fyrir löngu búið að tryggja sér titilinn.
Sampdoria vann báða leikina gegn Juve og er eina lið deildarinnar sem Juventus náði ekki að leggja á tímabilinu.
Leikurinn í kvöld var uppfullur af umdeildum atvikum. Til að mynda dæmdi dómarinn víti fyrir Juventus en aðstoðardómarinn sannfærði hann svo um að draga þann dóm til baka. Það var þó alls ekki minna víti en Sampdoria hafði fengið fyrr í leiknum.
Sampdoria endar í 14. sæti.



