Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV í Pepsi-deild kvenna, var ánægður með spilamennsku liðsins, en var þó afar ósáttur með dómara leiksins í 3-3 jafntefli liðsins gegn Val í dag.
,,Nei, við áttum að vinna þennan leik. Færin sem við brenndum af í dag voru fjölmörg og vítið var ekki besta færið sem við brenndum af, við áttum að vinna þennan leik í dag með tveimur eða þremur mörkum."
,,Við komum í fyrra og áttum að vera 4-0 yfir í hálfleik en töpuðum svo 3-0. Þetta var sama í dag, við óðum í dag, en við skoruðum ekki. Jú, við skoruðum þrjú mörk að vísu, en áttum að skora sex eða sjö mörk."
,,Við missum í hálfleik hafsentinn okkar útaf, en það kom ung stelpa sem stóð sig vel og fyllti hennar skarð. Varnarleikurinn kannski ekki jafn góður og í fyrra, en við erum að vinna í því og það á eftir að skila sér."
,,Hún er öll að koma til, hún er að gera sér grein fyrir hraðanum og hörkunni því þetta er svolítið hægara en í Ástralíu en hún kom flott inn í þennan leik og ég er mjög ánægður með hana."
,,Þær spila mjög vel og það er alveg rétt hjá þér og eiga hrós skilið. Tala nú ekki um að hafa lent 3-1 undir, að þær eiga allt hrós í heiminum skilið en blessaður þjálfarinn þeirra hefði þurft að hemja sig aðeins í lokin."
,,Boltinn er kominn útaf þegar hann telur að brotið eigi sér stað og ég var algerlega ósammála þessu. Hann átti að spjalda mig, engin spurning, en að setja beint rautt spjald er algjör skandall," sagði Jón Ólafur ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.






















