Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur Fram 
Kvennalið Fram fékk sjö leikmenn til liðs við sig
Kvenaboltinn
Dagmar Mýrdal leikur með Fram í sumar.
Dagmar Mýrdal leikur með Fram í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennaliði Fram sem leikur í 1. deild kvenna hefur á undaförnum dögum borist mikill liðsstyrkur fyrir komandi átök í sumar. Alls hafa sjö leikmenn gengið til liðs við liðið sem koma til með að gera mjög góðan hóp betri.

,,Ljóst er að þessi myndarlegi liðsstyrkur eykur breiddina í liðinu til muna og kemur með aukna reynslu inn í hópinn, reynslu sem á eftir að nýtast liðinu vel í komandi baráttu," segir á vef Fram um komu þessara leikmanna.

Leikmennirnir sem um ræðir eru:
Bryndís María Theodórsdóttir frá Danmörku
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir frá Þór
Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir frá Stjörnunni
Eyrún Rakel Agnarsdóttir frá Fylki
Hekla Pálmadóttir frá Breiðablik
Rebekka Katrín Arnþórsdóttir frá Breiðablik
Þóra Rut Jónsdóttir frá Tindastóli.
Slapp
banner
banner