Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 18. maí 2013 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Yahoo 
Morten Olsen: Eriksen betri en Sneijder á ýmsum sviðum
Morten Olsen, landsliðsþjálfari Danmerkur, segir Christian Eriksen vera betri á ýmsum sviðum heldur en Wesley Sneijder og Rafael van der Vaart voru á 21. aldursári.

Eriksen, sem er miðjumaður Ajax, hefur verið orðaður við brottför til stærra félags og telur Olsen hann vera tilbúinn fyrir næsta skref.

,,Ég tel Christian vera kominn lengra á ýmsum sviðum heldur en Van der Vaart og Sneijder voru á hans aldri," sagði Olsen við TV2.

,,Þess vegna tel ég hann tilbúinn fyrir næsta skref ferilsins, það leikur ekki mikill vafi á því. Hann skorar jafn mikið og Van der Vaart og Sneijder skoruðu á þessum tímapunkti ferilsins.

,,Van der Vaart fór frá Ajax 22 ára gamall, á meðan Sneijder fór til Real Madrid þegar hann var 23 ára."


Samningur Eriksen við Ajax rennur út eftir ár og hefur hann verið sterklega orðaður við Borussia Dortmund og Liverpool, en Tottenham er einnig á eftir honum.
Slapp
banner
banner