Franck Ribery fór hreinlega á kostum í síðasta deildarleik Bayern München á tímabilinu þegar hann átti þátt í öllum mörkum liðsins í 4-3 sigri á Mönchengladbach.
Það var einhver skjálfti í leikmönnum Bayern í upphafi leiks en öll þrjú mörkin sem þeir fengu á sig komu á fyrstu tíu mínútunum. En Bayern hrökk síðan í gang og eftir að hafa verið 1-3 undir höfðu þýsku meistararnir betur 4-3 eftir fjörugan leik.

Ribery sýndi enn og aftur frábæra frammistöðu en eftir að hafa lagt upp fyrsta mark Bayern fyrir Javi Martinez skoraði hann annað og þriðja mark Bayern. Arjen Robben skoraði síðan sigurmark Bayern eftir fyrirgjöf frá Ribery.
Seinna mark Ribery var sérlega glæsilegt eftir að hann tók boltann í fyrsta á lofti með vinstri og hamraði honum í netið, eins og sjá má hér neðar. Ribery skoraði tíu deildarmörk og átti fjórtán stoðsendingar.
Bayern endaði með 25 stiga forskot á toppi deildarinnar.
Bóng đá: Monchengladbach 3-3 Bayern Munich (53... by tapchibongda