Á þessum ilmandi fína laugardegi er fátt betra en að skoða helsta slúðrið úr götublöðum Englands. Enska pressan er ekki að missa sig í Eurovision eins og sú íslenska.
Jose Mourinho ætlar að reyna að fá Cristiano Ronaldo með sér frá Real Madrid til Chelsea. Manchester United vonast til að krækja í portúgalska snillinginn. (Daily Mail)
Arsenal mun líklega kaupa markvörðinn Julio Cesar frá Queens Park Rangers. (Daily Mirror)
Spænski markvörðurinn Pepe Reina er efstur á óskalista Barcelona sem endurnýjar markvarðasveit sína. (Daily Mirror)
Fiorentina ætlar að reyna að kaupa Fernando Torres frá Chelsea eða Edin Dzeko frá Manchester City ef félagið missir Stevan Jovetic til Arsenal í sumar. (TalkSport)
Framherjinn Andreas Weimann hjá Aston Villa hefur fengið tilboð frá öðrum félögum. (Metro)
David Moyes ætlar að reyna að lokka miðjumanninn 19 ára, Ross Barkley, á Old Trafford fyrir 12 milljónir punda í sumar. Hann ætlar að leggja áherslu á að krækja í unga leikmenn til Manchester United. (Caught Offside)
Nigel Adkins, knattspyrnustjóri Reading, segir að markvörðurinn Alex McCarthy sé ekki að fara neitt. Þessi 23 ára leikmaður var valinn í enska landsliðið. (Daily Star)
Brad Guzan, markvörður Aston Villa, var nálægt því að yfirgefa félagið fyrir ári sínu. Hann er nálægt því að skrifa undir nýjan samning við félagið. (Daily Star)
Jamie Carragher, 35 ára, segir að það sé enginn möguleiki á því að hann taki vítaspyrnu í lokaleik sínum þegar Liverpool mætir QPR á Anfield á morgun. (Daily Telegraph)
James, sonur Jamie Carragher, reyndi að fá pabba sinn til að hætta við að leggja skóna á hilluna. James leikur með unglingaliðum Liverpool. (The Sun)
Ryan Giggs segir að það hafi ekki komið upp í hugann að hætta í boltanum og hann ætlar að halda áfram að spila. (Daily Telegraph)
Mannaskít var smurt á veggina í útiklefanum á heimavelli Brighton eftir að liðið mætti Crystal Palace í umspili Championship-deildarinnar. Málið er í rannsókn. (The Sun)


