Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 18. maí 2013 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Spánn - Leikir dagsins: Þrír leikir í dag
Enn eru þrjár umferðir eftir í spænsku úrvalsdeildinni, en þrír leikir fara fram í 36. umferð í dag.

Valencia og Real Sociedad eru í harðri baráttu um fjórða sæti deildarinnar en það gefur þátttökurétt í undankeppni Meistaradeildarinnar. Liðin eru jöfn að stigum í fjórða og fimmta sæti og eiga leiki í dag.

Valencia heimsækir Getafe sem er í níunda sæti klukkan 16:00 og Real Sociedad mætir Sevilla sem er í áttunda sæti klukkan 20:00.

Í millitíðinni eigast við Granada og Osasuna en liðin eru jöfn að stigum í 15. og 16. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.

Leikir dagsins:
16:00 Getafe - Valencia
18:00 Granada - Osasuna
20:00 Sevilla - Real Sociedad
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner