Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 18. maí 2013 12:00
Fótbolti.net
Umfjöllun: ÍH sótti þrjú stig á Akranes
Lið Kára í leiknum í gær.
Lið Kára í leiknum í gær.
Mynd: Kári
Eiríkur Viljar Kúld skoraði fyrir ÍH.
Eiríkur Viljar Kúld skoraði fyrir ÍH.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Kári 1 - 2 ÍH
0-1 Eiríkur Viljar Kúld ('33)
0-2 Haukur Ólafsson ('43, víti)
1-2 Sjálfsmark ('57)

Káramenn mættu liði ÍH frá Hafnarfirði í Akraneshöll í kvöld. Hátt í 100 manns mættu til að fylgjast með leiknum þar sem bæði lið áttu fína kafla.

Leikurinn var ekki nema um 5 mínútna langur þegar ÍH gerði harða hríð að marki Kára og á stuttum tíma náðu Káramenn að losa boltann tvisvar af marklínu.

ÍH voru nokkuð sterkari í fyrri hálfleik, en Káramenn fengu líklega sitt besta færi á um 15 mínútu þegar þeir skölluðu boltann rétt framhjá marki ÍH. ÍH átti frábært skallafæri á 25 mínútu en skallinn fór vel framhjá.

Það var svo á 32 mínútu sem ÍH náði að brjóta ísinn, en Káramenn sendu þá misheppnaða sendingu úr vörninni beint í lappirnar á Eiríki Viljari leikmanni ÍH sem tókst að lauma boltanum með lúmsku skoti framhjá markverði Kára niðri í hægra hornið.

Á 42 mínútu gerðist svo umdeilt atvikt þegar ÍH fékk vítaspyrnu fyrir litlar sakir þegar Aron Örn leikmaður Kára pikkaði í bolta og mann inn í teig. Haukur Ólafsson tók vítið og skoraði örugglega.

Hálfleikstölur 0-2 fyrir ÍH sem höfðu fram að þessu haft yfirhöndina í leiknum.
Káramenn komu grimmir til baka og voru staðráðnir í að bæta hlut sinn, en strax á 50 mínútur áttu unnu Káramenn skallaeinvígi gegn markverði ÍH, en varnarmaður ÍH steig aftur fyrir og náði að hreinsa boltann áður en hann fór í markið.

Á 57 mínútu náðu Káramenn að koma sér aftur inn í leikinn, en þá sendi bakvörður Káramanna Birkir Guðmundarson boltann inn í teig þar sem hann fór af varnarmanni ÍH og í markið.

Skömmu seinna náðu Káramenn að koma boltanum aftur í markið, en dómari leiksins hafði dæmt örskömmu áður sóknarbrot á Káramenn og markið því ekki gilt.
Barátta og jafnræði var með liðunum það sem lifði af leiks en Káramenn nokkuð hættulegri.

Á 85 mínútu kom eitt besta færi leiksins þegar Káramenn áttu aukaspyrnu sem endaði á fjærstöng hjá leikmanni Kára sem skaut boltanum framhjá markverði ÍH, en enn og aftur var bjargað á marklínu, en líklega aldrei eins tæpt og þarna og ÍH heppnir að missa leikinn ekki niður í jafntefli.

Eftir þetta var lítið um færi og að lokum flautaði ágætur dómari leiksins leikinn af og ÍH fagnaði góðum sigri á heimamönnum í Kára.
Slapp
banner
banner