HK/Víkingur 1 - 4 Þór/KA
0-1 Lára Einarsdóttir ('7 )
0-2 Mateja Zver ('9 )
1-2 Elma Lára Auðunsdóttir ('52 )
1-3 Katrín Ásbjörnsdóttir ('74 )
1-4 Sandra María Jessen ('79 )
0-1 Lára Einarsdóttir ('7 )
0-2 Mateja Zver ('9 )
1-2 Elma Lára Auðunsdóttir ('52 )
1-3 Katrín Ásbjörnsdóttir ('74 )
1-4 Sandra María Jessen ('79 )
Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur með því að leggja HK/Víking að velli með fjórum mörkum gegn einu í Pepsi-deild kvenna í dag.
Gestirnir sóttu með vindi í fyrri hálfleik og tók aðeins liðið sjö mínútur að taka forystuna í leiknum, en þá skoraði Lára Einarsdóttir laglegt mark. Mateja Zver, sem var besti leikmaður Þór/KA í dag skoraði þá annað mark liðsins tveimur mínútum síðar og staðan því nokkuð þægileg fyrir gestina.
Liðið sótti gríðarlega í fyrri hálfleiknum og komust leikmenn HK/Víkings varla yfir miðju, en það var þó breyting á því í síðari hálfleik.
Strax á 52. mínútu minnkaði Elma Lára Auðunsdóttir muninnn fyrir HK/Víking en eftir mikið klafs í teignum þá kom heimaliðið knettinum í netið. Umdeilt er þó hver skoraði í raun markið, Elma og Karen Sturludóttir voru báðar í boltanum en dómarinn skráði það á Elmu.
Heimaliðið varð sterkara í kjölfarið og átti nokkrar álitlegar sóknir án þess að skapa sér almenninlega hættu. Gestirnir í Þór/KA kláruðu síðan dæmið á síðasta korterinu með tveimur mörkum.
Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði þriðja markið eftir flotta sókn áður en varamaðurinn Sandra María Jessen skoraði fjórða og síðasta mark gestanna. Liðið hélt boltanum vel og spilaði fína knattspyrnu og uppskar því sigur í dag.
Lokatölur 4-1. Þór/KA er með 4 stig eftir þrjár umferðir á meðan HK/Víkingur er með ekkert stig.


