Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar var að vonum hundsvekktur eftir 2-2 jafntefli sinna manna gegn Val á útivelli í kvöld.
Ástæðan er einföld, Valsmenn skoruðu tvívegis eftir að Stjarnan komst yfir í leiknum mörk, sem áttu kannski aldrei að fá að standa.
Ástæðan er einföld, Valsmenn skoruðu tvívegis eftir að Stjarnan komst yfir í leiknum mörk, sem áttu kannski aldrei að fá að standa.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 Stjarnan
„Miðað við hvernig við spiluðum og hvernig við vorum betri en Valur í leiknum og fáum svo tvö mörk á okkur sem eru mjög vafasöm. Vítaspyrnan sem er bara dýfa og síðan er hendi á þá í öðru markinu. Það er mjög dýrt að fá svona mörk á okkur þegar við spilum mjög vel og skilum góðu dagsverki. En því miður náum við ekki að skila inn sigri sem við áttum svo sannarlega skilið," sagði Rúnar Páll og hélt áfram.
„Við erum rændir sigri. Dómararnir gera mistök eins og leikmennirnir og hann er búinn að viðurkenna það fyrir mér. Það er sárt eftir á."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir